Ég hef unnið sem Ljósamaður/Ljósahönnuður fyrir Hljóðkerfa og ljósaleigu Akureyar í að verða 5 ár, einnig hef ég unnið sem tæknimaður fyrir Sagafilm (áður Norðurljós/Luxor) og Exton. Ég er nokkuð fróður um ljósabransann og tek að mér ljósamennsku fyrir árshátíð, böll, veislur, leiksýningar og margt fleira.
Ljósaverkefni sem ég hef unnið við (Listinn er ekki tæmandi):.
- Sugababes tónleikar í Laugardalshöll
- Scooter tónleikar í Laugardalshöll
- Prodigy tónleikar í Laugardalshöll
- Árshátíð FL-group Nýju Laugardalshöll
- Árshátíð VMA KA-heimilinu
- Árshátíð MA Íþróttahöllinni á Akureyri
- Söngkeppni VMA seinustu 6-7 ár Gryfjan
- Söngkeppni MA seinustu 5 ár
- Árshátíð Akureyrarbæjar 2008 og 2010
- Árshátíð Samherja
- Árshátíð Sjúkrahús Akureyrar
- Flest öll böll í KA heimilinu og Íþróttahöllinni seinustu 3-4 ár.
- Rígurinn – sameiginlega leiksýning MA og VMA í gryfjunni
- We Will Rock You – Söngleikur VMA árið 2010
- og margt margt fleira.
Ef þér vantar einhverjar upplýsingar þá er best að ná á mér á hsh(hjá)hsh.me
Árshátið VMA/Akureyrarbæjar 2010
Nokkrar myndir frá árshátíð VMA 2008





