Þetta var ótrúlega þétt setin helgi og myndiavélin fékk óspart að finna fyrir því!
Herlegheitin byrjuðu á föstudeginum þar sem ég átti eftir að klára að gera slideshow og smá myndband fyrir ungfrú norðurland sem haldin var í sjallanum á föstudag. Um kvöldið var ég svo að myndakeppnina sem var hin glæsilegasta í alla staði. Kristín Lea var valin fegursta stúlka norðurlands auk þess að vera valin netstúlka Sjallans. Eftir keppnina átti ég svo eftir að klára video sem ég sýndi svo í fermingu systkina minna á Laugardeginum og var að því til að verða 4 á föstudagsnóttu.
Laugardagurinn byrjaði svo snemma með því að fara með fjölskylduna í Studio og mynda fermingamyndir af systkinum mínum, það gekk svona ljómandi vel og náði ég mörgum flottum myndum. Síðan var það ferming í glerárkirkju og svo veisla í Hamri. Veislan heppnaðist mjög vel og það var margt um manninn, mörg skyldmenni sem maður hefur ekki hitt í lengri tíma en það var gaman að hitta liðið. Strax eftir veisluna var ferðinni svo heitið á Söngkeppni framhaldsskólana sem var haldin í Íþróttahöllinni og var ég að mynda fyrir AM-Events.
Frábær helgi í alla staði, 3000 myndir og nó að gera í vikunni! Myndasöfn eru væntanleg í vikunni. Þangað til næst. “Life Is like a Box of Chocolates… You Never Know What You’re Gonna Get!”



Vaknaður í blogginu ánægður með þig
já það var eiginlega drullu mikið að gera um helgina… aðalega hjá þér ég kom bara með