Að taka upp þráðinn..

Flokkað í: BigBen Djs, Blog á dag 09, Headline

Jæja, ég beilaði á þessu um tíma.. ætla nú samt ekket að hætta að blogga, Fan póstunum hefur ringt yfir mig og allir að segja mér að byrja aftur!

So here we go again..

Ætla að byrja á því að óska Arndísi systur í RVK til hamingju með 12 ára afmælið þann 30. Janúar síðastliðinn, Til hamingju með afmælið systir!

Fór í gær og hjálpaði Helga og Aníku að setja búslóðina sína í flutninga bíl vegna flutninga þeirra til RVK. Sorglegt að missa Helga úr bænum, allveg hreynt frábær félagi :)

Svo voru BigBen Djs voru að spila á dátanum í gær/nótt, það var vel mætt og mega stemming! Náði þessu kostulega video-i af Sindra í grúví töktum::

Tók þetta video á nýja símann minn, Sony Ericsson c902 – seldi iPhone á föstudag og fékk mér þennan, merkilega góð gæði í honum..

Annars gegnur allt bara sinn vana gang – vinna… vinna… vinna… kreppa… vinna… ný ríkistjórn… hvalveiðar.. og svo fr.

KV. Helgi

6 Responses to “Að taka upp þráðinn..”

  1. Dagbjört segir:

    vinna vinna vinna ræktin?? á það ekki að standa þarna einhverstaðar ?? =)

  2. Helgi Hrafn segir:

    Takk fyrir hjálpina, Helgi! Já það er sorlegt að fara frá fjölskyldunni, vinum og vandamönnum á Akureyri. En við eigum vonandi eftir að koma norður aftur. :P

  3. Aníka segir:

    Bíddu!?! Eruði þið Helgarnir að taka credit fyrir að hafa staðið þarna eftir að allt var búið? og svo komuði AÐEINS of seint! ;) heheh… nei djók!
    En takk HSH fyrir að teipa fyrir hurðina á ísskápnum, það koms sér vel ;) Hlakka annars bara til að sjá ykkur í lok feb ;)

  4. Dagbjört segir:

    …klárlega verið að horfa á hverning ég kynntis mömmu ykkar í kvöld…. eitthvað of upptekin allavenna til að blogga ;)

  5. Pétur segir:

    Hvað segiru er þetta að breytast í blogg á mánuði þá núna hjá þér :)

  6. Dagbjört segir:

    mér sýnist það stefna í það Pétur hjá honum ;) annars er svo mikið að gerast á æstunni að kannski þarf hann að breyta þessu í blogg á mánuði í svoltinn tíma… =/ ?

Leave a Reply