Ég ligg hérna uppí rúmmi og velta því fyrir mér um hvað skal skrifa.. fyrir framan mig er hundurinn minn, hann Neró og liggur með rassinn í átt að mér og á hvolfi í þokkabót.. Ekkert merkilegt við það svosem, NEMA hann er hárlaus á pungnum! Meina, haa? Hann er kafloðinn allstaðar nema á 3 stöðum, bláa auganu, brúna auganu og pungnum.. greyjið hvutti svo á hann að þola -50° frost, hann hlítur að skjóta ísnálum ef hann fengi að fara uppá tík í frosti.. annars er hann voða krúttlegur og sjálfum sér nægur, allavegana eftir 7 á kvöldin..
Það er þannig að ef við erum inní stofu að horfa á sjónvarpið og eitthvað leiðinlegt byrjar, eða þá að klukkan slær 9 þá stendur kauði upp og röltir inn í svefnherbergi og fer að sofa, erfitt fyrir greyjið að vaka svona lengi
Eeeen svona af því að ég er byrjaður að tala um hundinn, þá fór ég og Biggi sem á Dreka bróðir Nerós með þá bræður út að hlaupa. Nema hvað að við erum svo sniðugir að við keyrðum upp að skúrunum fyrir neðan fálkafells veginn og hentum þeim út, svo keyrðum við bara rólega upp í fálkafell og þaðan upp á súlumýrar og þaðan eitthvað í átt að súlu tindinum, og alltaf eltu hundarnir á fullu allan tímann. Svo snérum við við og keyrðum niðreftir og félagarnir enn og aftur á fullu á eftir bílnum þangað til að allt í einu þá nenntu þeir ekki að vera með okkur og tóku bara u-beygju í hina áttina og hurfu! Ég og Biggi máttum dunda okkur við það að leita að þeim í 40 mín, eða þangað til að þeir birtust út úr rökkrinu voða kátir með lífið og tilveruna..
Svo að lokum, þá klúðraði Ryan nokkur Secrest þessu nokkuð vel!
Sjá hér :: Smellið hér til að sjá frétt um Ryan reyna að gefa blindum manni five..
Þangað til á morgun, Bæ!
P.s á meðan þið bíðið eftir næsta bloggi þá mæli ég með því að þið hlustið á Bittersweet Symphony!

hahahah eg ætla næst þegar ég sé blinda kallinn niðrí bæ fara og reyna gefa honum fimmuna
klúður =)
já maður hefði nú haldið að kauði væri með hár á pungnum :/ svo liggur hann í snjónum …..eflaust ekki það hlíjasta á das kúlur
ooooog já þetta er geðveikt lag….!!!! =)
ég held að enginn hundur sé með hár á pungnum!
Ryan klúðraði feitt þarna
hehe
ef ég bíð eftir næsta bloggi, þá skal ég hlusta á lagið
bíddu bíddu… ertu svona upptekinn í icehusky að þú hefur ekki tíma til að blogga strákur??